Áratuga reynsla. Vönduð verk. 555 6005
Sandblástur á stáli

SANDBLÁSTUR · HÁÞRÝSTIÞVOTTUR · LASERHREINSUN

Öflug tæki.
Áratuga reynsla.
Vönduð verk.

Hreinsun, ryðvarnir og málun á tækjum og mannvirkjum. Við tökum að okkur stór iðnaðarverkefni jafnt sem smærri verk.

FYRIR FYRIRTÆKI, STOFNANIR OG EINSTAKLINGAVERKEFNI UM ALLT LAND
MEÐAL ÞEIRRA SEM VIÐ HÖFUM UNNIÐ FYRIR

01 / ÞJÓNUSTA

Vönduð vinna tryggir
betri endingu.

Við hreinsum og verjum allt frá smáhlutum til stórra stálvirkja. Aðferðin er valin eftir efninu, ástandi þess og því sem á að gera næst.

02 / UM OKKUR

Búnaður og reynsla
fyrir stór verk.

Hjá BLASTUR.IS býr starfsfólkið yfir áratuga reynslu af sandblæstri, háþrýstiþvotti, ryðvörnum og iðnaðarmálun.

Við höfum unnið að krefjandi verkefnum í virkjunum, stóriðju og á hafnarsvæðum. Við búum yfir tækjabúnaði og reynslu til að sinna umfangsmiklum verkum, frá hreinsun og undirbúningi til ryðvarna og málunar.

  • Reynsla af verkefnum í virkjunum og stóriðju
  • Öflugur búnaður og reynt starfsfólk
  • Verkefni um allt land
Ræðum næsta verkefni

VERKLAG

Gæði og öryggi.

Réttindi og þjálfun

Starfsfólk hefur tilskilin réttindi til þeirra verka sem það sinnir og sækir reglulega námskeið, meðal annars í skyndihjálp, öryggi á vinnusvæðum og merkingum vinnusvæða.

Gæðakerfi og áhættumat

Við vinnum eftir gæðakerfi og fylgjum viðeigandi gæðastöðlum. Verklag og öryggisráðstafanir byggja á áhættumati hverju sinni og taka mið af eðli verksins og aðstæðum á vinnusvæðinu.

Kröfur á vinnusvæði

Við fylgjum öryggisreglum og kröfum verkkaupa. Vönduð afmörkun, varnir og skipulag vinnusvæðis eru hluti af undirbúningi verksins.

03 / VERKEFNI

Iðnaður, innviðir
og mannvirki.

Verkefni okkar spanna allt frá viðhaldi iðnaðarbúnaðar til hreinsunar og yfirborðsmeðhöndlunar bygginga og mannvirkja.

Yfirborð húss undirbúið fyrir viðhald
YFIRBORÐSHREINSUNGrunnur að vönduðu viðhaldi.
01

Virkjanir og stóriðja

Sandblástur, hreinsun og yfirborðsmeðhöndlun í virkjunum og hjá fyrirtækjum í stóriðju.

02

Hafnir og innviðir

Við höfum unnið á hafnarsvæðum og við hitaveitugeyma og fjarskiptamöstur.

03

Byggingar og mannvirki

Meðal bygginga sem við höfum unnið við eru Bessastaðir, Stjórnarráðið og Gerðuberg.

Ræðum verkefnið þitt

04 / HAFÐU SAMBAND

Segðu okkur
frá verkefninu.

Sendu okkur stutta lýsingu á verkefninu og láttu myndir eða önnur gögn fylgja. Við förum yfir upplýsingarnar og höfum samband við þig.

Hringdu í okkur555 6005Sendu tölvupóstblastur@blastur.is
Komdu við · virka daga kl. 8–17Helluhraun 6, Hafnarfjörður

Fyrirspurn um verkefni

* Skyldureitir

Sendingar verða virkjaðar þegar nýi vefurinn fer í loftið. Hafðu samband í 555 6005 eða á blastur@blastur.is.

Við notum upplýsingarnar til að svara fyrirspurninni. Nánar um persónuvernd.