Hentar laserhreinsun verkefninu?
Við bjóðum upp á laserhreinsun til yfirborðshreinsunar. Við metum efnið, það sem þarf að fjarlægja og kröfur um lokaáferð áður en aðferð er valin.
Sendu okkur myndir af hlutnum eða fletinum, stærðarmál og upplýsingar um efnið. Þannig getum við metið hvort laserhreinsun henti eða önnur hreinsiaðferð sé heppilegri.
Hvað ræður því hvort laserhreinsun hentar?
Það fer eftir efninu sem á að hreinsa, því sem þarf að fjarlægja og þeirri áferð sem óskað er eftir. Við förum yfir þessa þætti með þér áður en vinna hefst.
Áratuga reynsla. Um allt land.
BLASTUR.IS sinnir verkefnum fyrir fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga. Við erum til húsa að Helluhrauni 6 í Hafnarfirði og tökum að okkur verkefni um land allt.
