Ryðvarnir og iðnaðarmálun
Ryðvarnir og málun verja málma gegn tæringu og sliti. Við tökum að okkur iðnaðarmálun og endurmálun ásamt hreinsun og undirbúningi fyrir verkið.
Við skoðum ástand yfirborðsins og aðstæðurnar sem það þarf að þola. Hreinsun, undirbúningur og málun eru skipulögð í samræmi við það. Ef fyrir liggur verklýsing eða kröfur um tiltekið málningarkerfi er gott að láta þær fylgja fyrirspurninni.
Getið þið séð um bæði hreinsun og málun?
Já. Við tökum að okkur sandblástur, hreinsun, ryðvarnir og málun. Við förum yfir verkefnið með þér og gerum tillögu að þeim verkþáttum sem þarf.
Áratuga reynsla. Um allt land.
BLASTUR.IS sinnir verkefnum fyrir fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga. Við erum til húsa að Helluhrauni 6 í Hafnarfirði og tökum að okkur verkefni um land allt.
