Sandblástur á tækjum, skipum og stálvirkjum
Sandblástur er áhrifarík leið til að hreinsa yfirborð og undirbúa það fyrir málun eða aðra yfirborðsvörn. Við vinnum með stál, ál, aðra málma, grjót og steypu þar sem efnið og ástand þess henta til blásturs.
Starfsfólk Blástur.is hefur margra áratuga reynslu af sandblæstri. Í gegnum árin höfum við blásið allt frá fingurbjörgum til skipa. Sú reynsla nýtist við val á aðferð fyrir hvert verkefni, stórt sem smátt.

Bílaboddí, felgur og allt milli himins og jarðar
Við sandblásum bílaboddí, felgur og bílahluti, auk vélahluta, traktora, mótorhjóla, pottofna og húsgagna. Hvort sem um er að ræða einn hlut eða stærra verkefni veljum við aðferð út frá efninu og ástandi þess.
Hvað er sandblástur?
Við sandblástur er blástursefni knúið á flöt með þrýstilofti. Með réttu efni og vinnuaðferð má hreinsa yfirborðið og móta áferð þess eftir því sem verkið krefst.
- Fjarlægja ryð, gamla málningu og óhreinindi.
- Hrjúfa yfirborð til að skapa festu fyrir málningu eða aðra húðun.
- Jafna eða fínna áferð með viðeigandi blástursefni.
Blástursefni valið eftir verkefninu
Blástursefni eru til í mörgum gerðum og kornastærðum, meðal annars steinefni, stálsandur, glerkúlur, glersalli og sódi. Við metum efnið sem á að vinna, ástand þess og þá áferð eða yfirborðsvörn sem á að fylgja. Út frá því veljum við blástursefni, grófleika og vinnsluaðferð.
Hvað þarf að hafa í huga?
Ekki hentar að sandblása alla hluti eða alla fleti á sama hlut. Vönduð afmörkun og varnir eru því mikilvægur hluti verksins.
- Við afmörkum það svæði sem á að blása svo ekki þurfi að endurvinna aðliggjandi fleti að óþörfu.
- Ljós, gler, læsingar og aðrir viðkvæmir íhlutir þurfa viðeigandi hlífar eða að vera fjarlægðir fyrir vinnslu.
- Þunnar málmplötur geta aflagast eða gatast. Við metum því sérstaklega hvort þær henti til sandblásturs og hvaða aðferð sé viðeigandi.
Þarf ég að vita hvaða blástursefni hentar?
Nei. Sendu okkur myndir, stærðarmál og upplýsingar um efnið og það sem þú vilt láta gera. Láttu einnig vita hvort fyrirhugað sé að mála eða húða hlutinn. Við ráðleggjum þér um aðferð og undirbúning.
Áratuga reynsla. Um allt land.
BLASTUR.IS sinnir verkefnum fyrir fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga. Við erum til húsa að Helluhrauni 6 í Hafnarfirði og tökum að okkur verkefni um land allt.
